31janúar

Home sweet home

Ég hef fengið nokkrar kvartanir yfir bloggleysi og yfir því að við létum ekki vita af því að við værum komnar heim. Við erum allavegna búnar að yfirgefa Asíu og komnar aftur heim á klakann góða.
Næst á dagskrá hjá okkur er að knúsa alla og leita okkur að góðri vinnu. Ef þið eigið einhverja vinnu megiði endilega láta okkur vita ;) Hildur er síðann á leiðinni til Sviss í nokkra daga en elsku sæta Fanney á afmæli í dag og er orðin rosa stór stelpa!!
Til hamingju með afmælið elsku kínverjinn minn :*
我爱你


jaaá Hemmi minn ;)



31. janúar 2007 klukkan 21:53
Hildur og Fanney
5 athugasemdir
09janúar

Gleðilegt nýtt ár:)

Jebbs soldið seint en......við vonum að þið hafið öll skemmt ykkur alveg konunglega á gamlárs og borðað á ykkur gat. Við gerðum það allavegana. Þetta var bara mjög skemmtilegt og vel heppnað kvöld. Við byrjuðum á því að fara út að borða með Sigga, Kidda og Halldóri. Fengum okkur Hutong Pizzu – bestu pizzurnar í bænum, kannski ekki alveg áramótamatur en alveg obboslega góður! Þökkum Ástu kærlega fyrir þessa ábendingu;) Síðan fórum við heim til strákana og vorum þar yfir núllið. Síðan var tekin sú fyrirtaks ákvörðun að spila smá á píanó og syngja, en við komumst ekki einu sinni í gegnum eitt lag því löggan var barasta komin fyrir utan og sagði okkur að halda okkur saman!
Þá fórum við niður í bæ og héldum bara áfram að syngja í leigubílnum! (eða svona næstum því allir – sumir þurftu eitthvað að .... fara annað!)
 Annars er bara skólinn byrjaður á ný (fengum heila þrjá daga í byrjun janúar) og það er rosa gaman...... eða svona, næstum því! Prófin fara alveg að skella á, bara tvær vikur í það. Og við sitjum dag og nótt sveittar yfir bókunum að reyna að troða öllu inn – tölum orðið bara við hvor aðra á kínversku, híhí!

En ástæðan fyrir því að við höfum ekkert bloggað nýlega er af því að við höfum ekki komist inn á stjórnkerfið. Netið í Kína er voðalega hægt, við komumst ekki inn á allar síður. Og þetta er allt saman út af einhverjum jarðskjálfta í Taiwan....... og það tekur tvær til þrjár vikur að laga þetta......þeir kunna þetta þessir kínverjar!!!
 

Hafið það gottSvalur

 
09. janúar 2007 klukkan 13:04
Hildur og Fanney
4 athugasemdir
26desember

gleðileg jól :)

Gleðileg jól alle sammen og farsælt komandi nýtt ár. Vonum að þið hafið skemmt ykkur vel og fengið fullt af gjöfum;)

Gjöfin okkar til ykkar er að það eru komnar (loksins) myndir inn á síðuna undir tenglar. En það eru að vísu ekki allar, það koma fleiri inn bráðlega.

Aðfangadagskvöld heppnaðist bara ótrúlega vel, maturinn meira að segja líka!
Við hjálpuðumst öll við að að elda og útkoman var líka bara eitt meistaraverk, mætti halda að Jói fel hefði verið á bak við þetta;)

Síðan eftir matinn opnuðum við pakkana. Og við þökkum kærlega fyrir okkur, fengum rosalega mikið af flottum gjöfum frá familyunni.  Síðan var náttúrulega borðað yfir sig og horft á nokkrar jólamyndir – gerist ekki betra!

Á jóladag lágum við upp í sófa að horfa á Friends og éta mest allan daginn. En síðan þegar leið á kvöldið drössluðumst við út í búð að kaupa í matinn. Það var nefninlega raglette í matinn....mmmmhhhh. Gerist ekki betra! Og síðan eftir matinn var horft á stelpurnar, það var ekki leiðinlegt! Nágrannarnir þurftu meira að segja að þagga niður í okkur því við skemmtum okkur svo vel :/

Jæja við erum búnar að blaðra nóg, best að drífa sig í ræktina eftir allt þetta át!

26. desember 2006 klukkan 12:04
Hildur og Fanney
4 athugasemdir
22desember

pósturinn Páll

2 dagar í jól og við erum búnar að kaupa allar jólagjafir :) (reyndar ekki margar)

Jólaandinn í kína er ekkert að drepa okkur hérna, þvert á móti en hinsvegar er jólaandinn okkar á við sönn íslensk jólabörn  og við búnar að skreita jólatréið, setja jólagjafir undir tré (við erum það heppnar að við fengum báðar jólagjafir frá fjölskyldunni okkar sendar frá íslandi), kaupa piparkökur (urðum víst að kaupa því við eigum ekki ofn). Svo erum við búnar að láta sauma á okkur jólakjól svo við förum ekki í jólaköttinn! eins gott því ég held að kínverski jólakötturinn sé verri en íslenski :/

Þorláksmessa hjá okkur er ekki mikið plönuð en eitt er víst að það er engin skata á boðstólnum. Aðfangadagur er aðeins planaður, við verðum með jólaboð hér heima hjá okkur með nokkrum vinum. Við ætlum að elda!!! Já þið heyrðuð rétt, hver veit nema við séum listakokkar sem býða eftir að koma út úr skelinni, það kemur víst í ljós ;)  


Á jóladag kemur vinkona okkar í heimsókn og horfa á jólamyndir með okkur yfir hvítvíni og allskyns jólakræsingum og við ætlum að baka skonsur í morgunmat :P
 

22. desember 2006 klukkan 21:08
Hildur og Fanney
4 athugasemdir
19desember

Are you models?


Hér kemur smá punktafærsla um ferðina okkar, nennum ekki að skrifa heilan texta…..

  • Fórum til Xi´an miðvikudaginn 6 des.
  • Strax þegar við komum hoppuðum við í næsta strætó til að skoða Terracotta Hermennina – ekkert smá merkilegir.
  • Á leiðinni til baka lentum við í frekar vafasömum strætó  þar sem brutust út slagsmál og alles…. 
  • Síðan um kvöldið forum við í kínverskt leikhús, klikkað flott
  • Anna Fu vinkona okkar á hótelinu okkar sem hjálpaði okkur ekkert smá mikið, algjör dúlla
  • Fórum morgunin 7 des áfram til Shanghai
  • Hótel reddað á staðnum – lentum á besta stað
  • Jólahlaðborð í Kínversku perlunni! Oriental Pearl
  • Verslað
  • Stan – mjög næs ameríkani/kínverji sem sat á næsta borði þegar við vorum úti að borða og við lentum í hörku samræðum við.
  • Tony&Guy á times square (skelltum okkur í smá klippingu;))
  • Hárgreiðsla útá götu
  • Are you models?
  • Hagen daas mmmm...
  • Yuyuan gardens
  • The Bund
  • French consession
  • Fórum til Hong kong …….eða þannig (The mall of Hong Kong)
  • Sterkur matur
  • G&T alltaf
  • FLIPP ákvörðunin
  • Farmiði keyptur til Hainan með dagsfyrirvara
  • Skóli?
  • Fáránlega heiti flugþjónninn hjá China Southern airlines mmmm..
  • Hainan, Sanya
  • HITI !!!!
  • Paradís
  • Heitur sjór
  • Öldur
  • Hvítur sandur
  • Rússar arrrg
  • Dansað við rússa hahahahaha ojbjakk
  • Rósir frá rússanum – fór beint í ruslið!
  • Spilað
  • Klikkað flotta 4 stjörnu hótelið við sjóinn (já við erum prinsessur Ullandi)
  • Tan
  • Já við erum geggjað tanaðar og sætar núna og með mega flott hár :p
  • “Hello” sem getur glatt svo margann kínverjann
  • Gamla góða Peking en samt svo köld (það eru -10 stig núna)
 

Þetta var semsagt ferðalagið okkar, ógeðslega skemmtilegt bara í alla staði. Og við erum þegar byrjaðar að plana það næsta.....til Tokyo!!!Gráðugur


Í gær vorum við ógeðslega duglegar og tókum íbúðina okkar í smá jólahreingerningu og skreyttum jóletréð líka. Það er núna ótrúlega jólalegt og hreint inni hjá okkur. Held að íbúðin hafi bara aldrei glansað svona! – við kunnum þettaHlæjandi

Síðan hittum við Ástu vinkonu okkar um kvöldið, fengum okkur take-away á HIMNESKA japanska staðnum sem er rétt hjá okkur og horfðum á sex and the city heima hjá okkurKoss


Jæja sagði pæjan við gæjann.......... Svalur
19. desember 2006 klukkan 13:35
Hildur og Fanney
Engin athugasemd
09desember

Hainan, Sanya

Hae hae,

Okkur langadi adeins ad lata heyra i okkur herna fra Shanghai. Tad er buid ad vera otrulega gaman og vid erum bunar ad gera fullt. Meira ad segja eitt sem vid aetludum alls ekki ad gera......... kaupa flugmida a solarstrond.... sma flipp;)
Vid akvadum ad skella okkur til Hainan (sem er eyja i sudur-Kina sem Unnur Birna vann Ungfru Heim!).
Allavegana ta erum vid komnar med sma oged af kuldanum herna og aetlum ad naela okkur i sma tan adur en vid forum aftur til Peking.  Vid forum aftur til Peking fostudaginn 15 des;)
Hafid tad gott a klakanum......

Kvedja fra Shanghai!
09. desember 2006 klukkan 17:44
Hildur og Fanney
8 athugasemdir
05desember

Shanghai here we come :)

Það eru bara svona 12 tímar þangað til við leggjum af stað til Xi´an og síðan Shanghai. Frekar spennandi!! Við vitum ekki alveg hvað við eigum af okkur að gera. Það verður bara farið snemma í háttinn af því við þurfum af vakna kl 4 í nótt til að verða komnar á réttum tíma. Flugið okkar fer klukkan 7! En við komum aftur 11 des þá hendum við inn einni færslu og segjum ykkur frá ferðalaginu okkar Hlæjandi
En verðum að þjóta, erum að fara að sækja kjólana okkar sem við létum sauma á okkur :)

See you soon!
05. desember 2006 klukkan 12:54
Hildur og Fanney
4 athugasemdir
03desember

fyrsta kertið kveikt !

Vá það fer heldur betur að styttast í jólin! Þó við finnum ekki mikið fyrir jólaandanum í fólkinu hér í Kína þá erum við jólastelpurnar komnar í smá jólaskap :) Núna er fyrsti í aðventu og við erum búnar að kveikja á fyrsta kertinu á fína heimatilbúna aðventukransinum okkar ( það er ekki mikið úrval af aðventukrönsum útí búð þannig að við tókum málin bara í okkar hendur :)
Í gær fórum við í smá shoppingspree.. fórum um hádegið og ætluðum að kaupa eitthvað smá en áður en við vissum af var klukkan orðin 9 á kvöldi og við búnar að fara í fótsnyrtingu og handsnyrtingu, búnar að láta sauma á okkur samtals 5 kjóla, nokkrir skór og já kaupa fullt af jólagjöfum (sem by the way enginn fær fyrr en í lok janúar).
Fyrir utan þetta æðislega shoppingspree þá var helgin frekar róleg. Á föstudagskvöldið fórum við á eina góða ítalska veitingastaðinn í Peking og fengum okkur nokkur hvítvínsglös og geggjaðan mat.
Í dag (sunnudag) erum við bara búnar að vera rólegar, lærðum smá, fengum okkur vikulegu sunnudagspizzuna okkar og tókum smá breik til að horfa á despó.

Á morgun erum við að fara í kokteil í hádeginu sem sendiráðið er að halda í ótrúlega fínu hóteli útaf því að utanríkisráðherra er núna í Peking. Eins gott að við erum búnar að kaupa okkur nýja skó ;)

Á miðvikudaginn förum við svo til Xi´an og svo til Shanghai á fimmtudag, reynum að henda inn einu bloggi áður en við förum.
03. desember 2006 klukkan 20:43
Hildur og Fanney
3 athugasemdir
30nóvember

Lama Temple :)

Jæja þá er önnur vika að verða búin hérna í kínalandinu, rosalega líður þetta hratt! Þó það sé alveg rosalega gaman hérna þá vantar alveg eitt.....jólastemninguna! Kínverjar halda ekki upp á jól og þar af leiðandi er nánast ekkert skreytt nema smá í stóru búðunum sem gefur til kynna að það eru bara 24 dagar í jólin. Þannig við ákváðum að taka málin í okkar eigin hendur og strunsuðum beint í Ikea á mánudaginn og keyptum fullt af jólaskrauti, aðventukrans og jólatré Hlæjandi Síðan þegar við settumst aðeins niður og fengum okkur aðeins í gogginn sáum við okkur til mikillar undrunar að þau voru að selja graflax með graflaxsósu! Við stukkum báðar á þennan dýrindis mat og borðuðum hann af bestu lyst. Það kom okkur soldið á óvart að við mundum geta borðað graflax úti í Kína.

Í dag fórum við í Lama temple, mjög fallegt hof. Það sem var samt skemmtilegast að sjá var að það voru aðallega kínverjar þarna....og við. En þeir voru þarna allir til þess að biðja. Þetta er örugglega með þeim elstu hofum sem við vitum um og það er ennþá verið að nota það, þetta er ekki eins og árbæjarsafnið það sem má ekki snerta neitt.
Gaman að sjá þetta, soldið spes.

Annars keyptum við okkur miða í gær til Shanghai. Við förum til Xi´an 6 des að skoða terracotta hermennina frægu og þaðan til Shanghai þann 7. og síðan aftur til Peking mánudaginn 11 des. Okkur hlakkar alveg rosalega mikið til að sjá Shanghai og ef til vill versla eitthvað smá líkaUllandi
Síðan fáum við vísa til Tokyo á morgun, þannig þá er ekkert annað eftir nema bara panta flugmiðann. Sem við gerum örugglega bara í byrjun næstu viku! Það er öllum ennþá velkomið að koma með...!!!

Jæja við erum búnar að monta okkur nóg, ætlum að fara að læra núna....

adios amigos

by the way... gaman að segja frá því að nýja myndin í hausnum er mynd af hverfinu okkar, Wudaokou, og við búum í bleiku blokkunum vinstra megin á myndinni :)
svo væri gaman að vita hverjir eru að lesa síðuna okkar þannig að endilega commentið eða skrifið í gestabókina. Það myndi gleðja okkur ótrúlega mikið
Hlæjandi
30. nóvember 2006 klukkan 16:55
Hildur og Fanney
4 athugasemdir
26nóvember

Greys anatomy :)

Jæja.. prófin okkar eru loksins búin og þau gengu svona upp og niður ;)

Vikan samanstóð af lærdómi og Greys anatomy seríu sem við erum orðnar hooked á. Á fimmtudagskvöldið fórum við út að borða með pabba hennar Fanneyjar því hann var hér í Peking í eina nótt útaf viðskiptum, við fórum í Hohai sem er hverfi í kringum ótrúlega fallegt vatn og fullt af veitingastöðum í kringum vatnið. Mjög næs.

Föstudagurinn byrjaði illa með hlustunarprófi sem var frekar erfitt en dagurinn átti eftir að breytast í snilldardag sem við þurftum svo sannarlega á að halda. Við kíktum í lunch með bekkjarfélögum Hildar og ákváðum svo að skella okkur á einn markað sem við vorum búnar að heyra að væri flottur.. hvort hann var!!!! Við enduðum á því að kaupa samtals 10 skópör og fullt af dóti, það var mega stuð !

Í gærkvöldi fórum við svo í grill í fancy hverfi þar sem maður í sendiráðinu á heima. Það endaði með því að við yngra liðið fórum á barstreet og tókum smá djamm.

26. nóvember 2006 klukkan 20:16
Hildur og Fanney
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...